Um okkur
Bíbí & Blaka hefur það að markmiði að bjóða upp á fallegan og vandaðan fatnað auk fylgihluta fyrir börn á aldrinum 0 til 14 ára.
Það er okkur kappsmál að bjóða upp á fjölbreytt úrval af vörum þar sem gæði og falleg hönnun eru í fyrirrúmi.
Við viljum enn fremur reyna að koma til móts við viðskiptavini okkar með því að bjóða upp á sambærileg verð og tíðkast á þessum vörum á þeirra heimamörkuðum.
Verslaðu þegar þér hentar
Netverlusnin Bíbí & Blaka er opin allan sólarhringinn. Pantanir sem berast fyrir kl. 12 að hádegi eru afgreiddar samdægurs. Við sendum frítt innanlands þegar verslað er fyrir 20.000 einnig er nú hægt að nálgast pantanir í verslun okkar í Mjóddinni að Þönglabakka 6. Viðtakandi erlendis greiðir fyrir sendingarkostnaðinn.
Merkin
Við höfum haft það að markmiði við val á merkjum að þar fari saman
gæði, falleg hönnun og fjölbreytni. Við viljum að hvert og eitt merki fái að njóta sín og myndi ákveðna sérstöðu innan Bíbí & Blaka. Flest merkin okkar eru dönsk. Danir eru framsæknir í hönnun á barnafatnaði og fylgihlutum og hafa á undanförnum árum komið með spennandi og fallegar nýjungar í barnafatnaði.
Við höfum sett okkur ákveðin viðmið við val á barnafatnaði þar sem ekki er einungis tekið tillit til gæði fatnaðar heldur líka horft til fyrirtækjamenningar og ákveðinna hugsjóna stofenda.
Bíbí & Blaka kynnir með stolti:
Drappa Dot, Småfolk, Kimera, Paul Frank, Vingino og Franck & Fischer.
Nú höfum við einnig bætt við þjónustu okkar og bjóðum upp á lopa frá Ístex, gæðaprjóna frá ADDI og prjónabækur.
Þjónusta
Við munum leitast eftir að veita viðskiptavinum okkar skjóta og góða þjónustu. Við viljum koma til móts við þarfir ykkar og eru allar ábendingar í þá veru vel þegnar.
Vefverslun Bíbí og Blaka er einföld í notkun en ef einhver vandkvæði eru þá vinsamlega hafið samband í gegnum netpóst bibi@bibiogblaka.is