Greiðslur
Á netverslun Bíbí & Blaka er tekið á móti öllum kreditkortum. Greiðslur fara fram á vörðu svæði þar sem kortanúmerin eru dulkóðuð. Kaupendur geta líka fengið vöruna senda í póstkröfu sé þess óskað.
Afgreiðsla
Vörur sem pantaðar eru fyrir kl. 12 á hádegi eru afgreiddar samdægus, frá versluninni og eru komnir í hendur viðskiptavina daginn eftir, einnig er hægt að nálgast pantanir í verslun okkar að Þönglabakka 6 í Mjóddinni.
Bíbí & Blaka sendir frítt þegar verslað er fyrir 20.000kr eða meira.
Ef verslað er erlendis greiðir viðtakandi sendingarkostnaðinn.
Skilmálar
Bíbí & Blaka áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga, einnig að breyta verðum eða hætta með vörutegundir fyrirvaralaust.
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara. Áskilin er réttur til að staðfesta póstkröfupantanir símleiðis.
Skilaréttur
Bíbí & Blaka sérmerkir allar sínar vörur. Á merkimiðunum kemur fram síðasti skiladagur. Almennur skilafrestur hjá Bíbí & Blaka eru 30 dagar og einnungis er tekið við vörum með merki fyrirtækisins.
Kaupandi greiðir sendingakostnað við skilavöru nema um augljósan galla sé að ræða. Við skil á vöru fær kaupandinn inneignarnótu hjá netverslun Bíbí & Blaka eða tekur út aðra vöru í staðinn.
Útsöluvörum er ekki hægt að skila eftir að útsölu líkur, en hægt er að skipta þeim á meðan útsölu stendur í aðra útsöluvöru.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um þær upplýsingar sem kaupandinn gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.